Íslandsmeistaramót Fullorðinna 2018 - BJÍ
Íslandsmeistaramót fullorðinna 2018 verður haldið laugardaginn 13. október í Laugardalshöllinni.
Íslandsmeistaramót fullorðinna 2018 fer fram laugardaginn 13. oktober í Laugardalshöll. Húsið opnar kl. 9 með vigtun keppenda og mótið sjálft hefst kl. 10. Keppt verður á fjórum völlum að þessu sinni.
Í ár verður mótinu skipt upp í þrjú getustig: hvít belti, blá belti og loks fjólublá belti og upp (fjólublá, brún og svört saman).
Að venju verða aðeins tveir opnir flokkar: Opinn flokkur kvenna og opinn flokkur karla. Allir geta skráð sig í opnu flokkana, óháð beltalit og þyngd, en þeir sem keppa í efsta getustiginu munu eiga forgang í flokkana.
Keppt verður eftir IBJJF reglum og er hægt að kynna sér þær hér, http://ibjjf.com/wp-content/uploads/2015/04/RulesIBJJF_v4_en-US.pdf .
Keppt verður í 8 þyngdaflokkum hjá körlum;
–64 kg (Light feather)
–70 kg (Feather)
–76 kg (Light)
–82,3 kg (Middle)
–88,3 kg (Medium heavy)
–94,3 kg (Heavy)
–100,5 kg (Super heavy)
+100,5 kg (Ultra heavy)
Keppt verður í 3 þyngdaflokkum hjá konum;
– 64.0 kg
– 74.0 kg
+74.0 kg
Athygli er vakin á því að mótshaldarar gefa sér fullkomið frelsi til að sameina flokka bæði eftir þyngdum og litum, ef flokkar eru of fámennir. Alltaf verður reynt að sameina flokka á sem sanngjarnastann hátt.
Til að ljúka skráningu þarf að millifæra 6.000 kr.
Inná reikningsnúmer: 0301-26-005642
Kennitala: 431008-2460
Setið ÍM18 í skýringu.
ATHUGIÐ! MJÖG mikilvægt er að senda kvittun úr netbankanum á [email protected]
með fullu nafni keppenda sem greitt var fyrir. Sérstaklega ef annar en keppandi greiðir gjaldið.
Contato
Entradas
-
Karlar 6000 ISK18 years and above
-
Konur 6000 ISK18 years and above
-
Karlar Opinn Flokkur 0 ISK
-
Konur Opinn Flokkur 0 ISK